Ég ætlaði mér að vera búin að krota eitthvað hér fyrir langa langa löngu síðan.
En eins og svo oft áður þá hafði annað vinninginn, líklegast fésbókin.
En í byrjun árs henti ég saman í hasti nýárskveðju sem vegna tæknilegra örðuleika og landshornaflakks á mér komst aldrei hér inn.
Vinir mínir á "smettinu" hafa sjálfsagt séð þetta en hér er allavega linkurinn.
Gleðilegt ár
takk fyrir árið 2008
miðvikudagur, janúar 28, 2009
fimmtudagur, desember 18, 2008
Líður að jólum
Úti kyngir niður snjó og rauð jólaljosin slá bleikri birtu á hvíta jörð. Já jólin sjálf eru víst á næsta leiti þó enginn sé jólaandinn á þessum bæ. Kannski því þessi jól verða þau fyrstu á 30 ára ævi sem ég eyði ekki í firðinum fagra á æskuheimilinu. Í staðin mun ég verma mig við fljótandi ál í Straumsvíkinni.
Engin jólakort hafa verið skrifuð, og verða sjálfsagt ekki (þið afsakið það vonandi), jólagjafir eru því síður komnar í hús, ekki einu sinni hugmyndir. En jólin koma víst hvort sem ég er tilbúin eða ekki.
Ég er ekki mikið fyrir kaupæði og glingur jólanna, heldur er það þessi yndislega samvera með mínum nánustu sem fær mig til að hlakka vanalega til þessarar hátíðar. Engar truflanir og skapið svo hátíðlegt, friðsælt og einlægt.
Hér eru nokkrar myndir frá jólum fortíðar.
Góða nótt elskurnar :**
p.s. Hægt að klikka á myndirnar til að skoða þær betur ;)

hmm hver ætli hafi fengið þenna STÓRA pakka

Ég, Kristín með Jón Karl, Jagga, Halldóra og Óskar

Dansað í kringum jólatréð

föstudagur, desember 12, 2008
Í skammdeginu
Sem manneskjur erum við gerð til að para okkur saman. Þó mörg okkar séum ekki, höfum jafnvel aldrei verið og munum kannski aldrei verða, hluti af pari þá höfum við nær öll þörf fyrir samneyti við aðra.
Undanfarið hef ég verið brotin, bæði í hug og hjarta. Sjálfsmyndin í molum og sjálfstraustið eftir því. Þegar þannig er ástatt þá er leitast eftir viðurkenningu og samþykki fólksins í kring og þar er ekki um auðugan garð að gresja. Ekki furða þar sem fólkið í kringum mig er mest nýir vinnufélagar sem sumir eru dugleg að benda mér á alla mína vankanta. Þeir eru ófáir.
Auðvitað er þetta alrangt viðmót hjá mér því ég veit að viðurkenningin verður að koma frá sjálfinu, koma að innan.
Í myrkrinu veit ég þó eitt.
Snerting er öflugt fyrirbæri með lækningarmátt.
Hún getur breytt svartnætti hugans í sólskin, gráti í hlátur og brætt köldustu hjörtu.
Faðmlag vinar eða elskhuga hefur dulin kraft og faðmlag móður er töframeðal.
Í þessari tíð ríkir svartnætti í hugum margra. Því vil ég viðja ykkur að hika ekki við að faðma fólkið í kringum ykkur. Það gefur ekki bara bágstöddum styrk og gefandinn fær jafnt og þiggjandi faðmlags.
Ef þið sjáið mig þarna úti í tilverunni og vitið einhvern deili á mér, þá þigg ég faðmlagið með þökkum. Ef þið viljið veita það.

miðvikudagur, nóvember 26, 2008
Einu sinni var mér sagt að ég hugsa of mikið.
Það var rétt, ég pæli of mikið og finn þörf fyrir að greina suma hluti niður í smáatriði. Alltof smá atriði. Hverri tilfinningu hjartans fylgir hugsun, yfirleitt sprottin af ótta.
Í kvöld leið mér. Ég fann tilfinninguna og reyndi að yfirhugsa hana í þeim tilgangi að drepa hana en hugurinn var tómur. Sama hver rök mín voru, þarna var tilfinningin.
I've seen your act
And I know all the facts
I'm still in love with who I wish you were
It ain't hard to see
Who you are underneath

And I wish you were here

laugardagur, nóvember 15, 2008
Stundum virðist lífið vera eins og fótboltaleikur.
Lífið er fótboltaleikur og ég er boltinn.
Þeytist milli manna og þegar loksins ég hef fundið stefnu, stefnuna á markið, þá kemur einhver og sparkar í mig svo ég tapa áttum.
Ég er nefninlega fótbolti og til þess gerð að láta sparka í mig.
Þar til allur vindur er úr mér.
Þá er ég uppnefnd tuðra og kastað til hliðar.
Fæ ekki lengur að taka þátt.

laugardagur, júní 28, 2008
Marmaris
Thad er meirihattar her i Tyrklandi. Fullt af skemmtılegu folki med okkur og allir jafn lett klıkkadır og vid Hafrun. Bunar ad halla party tvisvar enda erum vıd med svaka fina ibud medan margir eru med ansi litid herbergi. Alltaf erum vid sömu prìmadonnurnar. Erum nu ad mestu bunar ad liggja i leti vid sundlaugarbakkann ì algerri steik og vorum vid nu bara fegnar thegar skògareldarnir voru hèrna ì gaer thvì thà dròg fyrır sòlu ì smà stund. En vıd vorum öll svo upptekın ad fylgjast med hasarnum.
En Jaeja èg hreınlega nenni ekki ad skrifa meira enda farid al langa ad svala thorstanum med bjòr :)

Subscribe to:
Posts (Atom)